Föstudagur, 17. júlí 2009
ESB aðildarviðræður Íslendinga
Já takk - mikið agalega varð ég nú glöð þegar Alþingi samþykkti þetta í gær. Er ekki frá því að í brjósti mér slái lítið Evrópuhjarta.
Eftir að hafa búið í Evrópusambandsríki í nokkur ár og kynnst kostum þess að kaupa matvöru á viðunandi verði, borga af lánum á viðunandi kjörum (já, ótrúlegt en satt, lánið lækkaði við hverja afborgun!) og svo fram eftir götunum get ég ekki verið annað en sátt að Íslendingar sem þjóð ætli loksins að stíga útfyrir þröngsýnismúrinn sinn og skoða hvernig aðrir höndla hlutina!
Ég varð fyrir svolitlum vonbrigðum á sínum tíma þegar ég komst að því að Ísland er ekki best í heimi - því hafði verið innprentað í uppeldinu heima fyrir og af skólum, landi og þjóð en reyndist svo vera opinber heilaþvottur. Eftir að hafa búið í 300000 manna borgarhluta í stórborg erlendis finnst mér óneitanlega margir Íslendingar vera haldnir svolitlu mikilmennskubrjálæði! Góð samlíking finnst mér að Íslendingar eru soldið eins og hestar með svokallaða"hliðarleppa" - sjá bara beint fram en ekki til hliðanna!
Vona innilega að þessar aðildarviðræður verði farsælar svo Íslendingar framtíðarinnar geti búið við stöðugra hagkerfi og sæmileg lífskjör!
|
Erfiðar viðræður |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 10. júlí 2009
Eurovision?
Jahérnahér - bæði sveitastjórnarkosningar og úrslitakvöld Eurovison sama kvöldið - ég er hrædd um að það verði einhverjir í partý stuði það kvöldið og bærinn ef til vill málaður rauður 
Það verður allavegna engin fjölmiðlalognmolla í lok maí á næsta ári!
http://en.wikipedia.org/wiki/Eurovision_Song_Contest_2010
|
Kosið til sveitarstjórna 29. maí á næsta ári |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 19. júní 2009
Fúlegg og fúlegg...
...aumingja assan að liggja á fúleggi - en mér er spurn - verpa þær bara einu eggi í hvert sinn? Bara smá forvitni í mér sko :o) Best að skella sér á fuglavefinn og skoða varpvenjur arna!
Annars var frétt fyrr í vikunni sem sagði frá því að konur yfir 35 ára væru einnig í meiri áhættuhóp hvað varðar fúlegg - þ.e. frjósemin dettur allverulega mikið niður. Ætli hugtakið "Fúl á móti" sé eitthvað tengt þessari fúleggja-framleiðsu?
Vá sýrulegar pælingar snemma á föstudagsmorgni! Hvað var eiginlega í þessu Cheeriosi?
|
Talið að varpið í Arnarsetrinu hafi misfarist |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 24. mars 2009
Gott með þá!
|
Engar auglýsingar í tengslum við barnaefni í Sjónvarpinu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 12. mars 2009
Agi...
...í lagi - ja, eða ólagi? Finnst þetta reyndar ágætt ráð hjá kallinum að beita sektum, enda þetta sama vandamál í mörgum skólum hér á landi! Farsímaeign nemenda er með mesta móti og símar í dag orðnar græjur hinar mestu, myndavélar, myndbandstökuvélar, hljóðupptökutæki, tónlistarspilarar og útvörp! Allt getur þetta valdið truflun á hefðbundnu skólastarfi og vegna persónuverndarsjónarmiða óásættanlegt að börn séu með síma í skólanum. Kennarar eru teknir upp í kennslustund eða nemendur í búningsklefum - allt er þetta svo komið á YouTube eða Facebook um leið! Ekki nógu sniðugt, held að enginn vilji fá mynd af sér á netið í sturtu eftir íþróttatíma svo dæmi sé tekið!
Hvaða ráðum er hægt að beita hér á landi? Sé ekki fyrir mér að menntamálaráðherra fari að vasast í þessum málum!
|
Farsímar bannaðir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 5. mars 2009
Nýja Ísland
Já já - ég vísa nú bara í færsluna hér á undan- ríkisstjórnin í Manitoba virðist vera að gera meira fyrir Íslendinga heldur en íslenska ríkisstjórnin.
|
Tímabundin atvinnuleyfi í Manitoba |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 5. mars 2009
Fyrirheitna landið...
...jæja - eru þá ekki bara allir á leiðinni úr landi? Flytjast búferlum til vesturheims til Nýja-Íslands? Ekki finnst mér ástandið hér á Fróni vera félegt í nánustu framtíð!
Ætli þetta sé fyrsti hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda - þ.e. að flytja atvinnulausa Íslendinga úr landi?
Upplýsingar um Gimli í Manitoba
Vefmyndavél sem sýnir útsýni yfir Winnipeg vatn frá höfninni í Gimli
|
Samkomulag um atvinnumöguleika í Manitoba |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 3. febrúar 2009
128 og hálfs!
Ja há - þessi gamla kona er naumast orðin fullorðin - og sýnist mér bara nokkuð hress af myndinni að dæma!
Langlífisgen - já, það verður spennandi að sjá hvernig þetta þróast. Sjálfsagt verður hægt að fá pissupróf í apótekinu innan fárra ára til að athuga hvort maður beri þetta gen í sér 
http://news.bbc.co.uk/2/hi/asia-pacific/7857591.stm
|
Langlífisgenið fundið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 20. janúar 2009
Kókosbolluát...
...einu sinni fannst mér kókosbollur MJÖG góðar. (finnst það nú enn sko) Þetta var á þeim tímum sem að það fékkst svokallað "kókosbollukrem" í stórum boxum út í búð. Þetta gat ég gúffað í mig með skeið uppúr boxinu. (hef lært að hemja mig núorðið í kókosbolluátinu, ekki hinu átinu samt hehehe) Hef hlotið ómælda stríðni í gegnum árin frá ættingjum síðan út af þessu kókosbollukremsáti mínu. (ég vil taka það fram að ég var 12 ára þegar þetta átti sér stað!)
Það er greinilegt að þessir innbrotsþjófar hafa verið tæknisinnaðir sælkerar! 
|
Þrír handteknir með kókosbollur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 8. janúar 2009
Einhverfa
Ég er alveg viss um það að við þekkjum öll einhvern sem myndi greinast á einhverfurófinu einhversstaðar - ég gæti strax farið að nefna nöfn 
En hvaða úrræði er fyrir fólk sem orðið er fullorðið og er greinilega á einhverfurófinu?
Mér finnst alveg vanta upplýsingar um hvernig fólk ber sig að!
|
Einhverf börn greinast loks |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)






rosalegur
graejan
helgadogg
kristinsnae
Augnablik - sæki gögn...